Helgi Hrafn Gunnarsson alþingismaður hefur tekið við formennsku í flokki Pírata af Birgittu Jónsdóttur sem tekur við af honum sem þingflokksformaður.Breytingin tók gildi nú um mánaðamótin.
Þetta er ekki einu breytingarnar innan þingflokks Pírata, því Jón Þór Ólafsson hefur sjálfviljugur sagt af sér þingmennsku og tekur Ásta Guðrún Helgadóttir við sæti hans á þingi þegar það kemur saman síðar í vikunni.
Í tilkynningu frá Pírötum er það áréttað að formennska í flokknum sé eingöngu formlegs eðlis og helgist af kröfum þingsins. Formennskan hafi ekki í för með sér neitt sérstakt valdsvið né sérstaka ábyrgð. Þess vegna hafi formaður flokksins ávallt hafnað sérstöku launaálagi frá Alþingi vegna formennskunnar og það muni Helgi Hrafn einnig gera.
Píratar hyggjast setja þrjú mál í forgang á þessu þingi. Þau eru tillaga til þingsályktunar um fullgildingu OPCAT, sem mælir fyrir um eftirlit með stofnunum sem vista frelsissvipta einstaklinga. Fyrsti flutningsmaður er Birgitta Jónsdóttir. Þá er Helgi Hrafn Gunnarsson fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um sjálfstætt eftirlit með starfsemi og starfsháttum lögreglu og ónefnt er frumvarp um upplýsinga- og sannleiksskyldu ráðherra, sem Ásta Guðrún Helgadóttir, nýr þingmaður flokksins flytur. Þessi mál voru einnig flutt á síðasta þingi.
Píratar munu einnig, samkvæmt fréttatilkynningu, leggja áherslu á fjölmörg önnur mál í samræmi við grunnstefnu flokksins. Höfundaréttarmál verða væntanlega í brennidepli, friðhelgismál, tjáningarfrelsi og önnur borgararéttindi auk lýðræðismála.