Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, er harðorður í garð Guðmundar Franklíns Jónssonar forsetaframbjóðanda í færslu sinni á Facebook. Hann greinir frá því að hann hafi ekki kosið Guðna Th. Jóhannesson í síðustu forsetakosningum en ætli sér að gera það núna.
„Bæði hefur hann farið með forsetavaldið af stakri hófsemi og yfirvegun, en einnig er hinn kosturinn svo arfaslakur að það er ekki verjandi að kjósa ekki gegn honum,“ segir Helgi um valið en bætir við að honum leiðist fátt meira en að tala fólk niður og ákvað því að rökstyðja skoðun sína.
Sjá einnig: Guðmundur Franklín kokhraustur: „Ég er ekki að fara tapa þessum kosningum“
Að mati Helga þarf forseti að geta myndað sér skoðanir og hafa hugrekki til að tjá þær auk þess sem hann þarf að geta dregið rökréttar ályktanir út frá aðgengilegum upplýsingum og rökfræði. „Á því sviði hefur Guðmundur Franklín sýnt bæði getu- og metnaðarleysi. Hann virðist einfaldlega taka því fyrsta sem honum dettur í hug sem augljósum sannleika ef það passar við heimsmyndina hans,“ segir Helgi.
Hann bætir þó við að það þýði ekki endilega að Guðmundur hafi alltaf rangt fyrir sér heldur þurfi forseti einfaldlega að sækja sér upplýsingar og draga frá þeim ályktanir og krefst það auðmýktar, yfirvegunar, sannleikþorsta og rökfestu að sögn Helga.
„Að þessu leyti minnir pólitískur stíll Guðmundar Franklín óneitanlega á stíl Donalds Trumps, sem kemur ekki á óvart miðað við að Guðmundur Franklín hefur opinberlega lýst yfir stuðningi við þann dæmalausa vitleysing og hrotta,“ segir Helgi enn fremur og bætir við að slíkar týpur líti sem svo á að skoðanir séu jafngildar staðreyndum.
Sjá einnig: Ný könnun: Guðni með yfirburði – Stuðningsmenn Donald Trump styðja Guðmund
Þá virðast sömu týpur, að mati Helga, þarfnast þess að raunveruleikinn aðlagi sig skoðunum þeirra. „Við þurfum forseta sem getur dregið rökréttar ályktanir, þjáist af brennandi sannleiksþorsta og sýnir yfirvegun, rökfestu og auðmýkt gagnvart valdi sínu.“
„Eins og ég sagði í upphafi finnst mér fátt leiðinlegra en að tala fólk niður, en þarna er einstaklingur að sækjast eftir völdum og því verður að ræða hvernig hann kemur til með að fara með þau völd. Það er augljóst að Guðmundur Franklín kæmi til með að fara mjög illa með forsetavaldið,“ segir Helgi.
„Í stuttu máli blasir við að forsetatíð Guðmundar Franklín myndi einkennast af dómgreindar- og ábyrgðarleysi, fljótfærni, ofureinföldunum og skeytingarleysi gagnvart staðreyndum. Það er ekkert í lagi hvernig þannig stjórnmál hafa verið að færa sig upp á skaftið síðustu ár. Eina leiðin til að tryggja að þannig stjórnmál festist ekki í sessi, er með því að sem flestir kjósendur mæti á kjörstað og kjósi eitthvað annað.“