Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata kallar Facebook viðbjóð sem Íslendingar ættu að sniðganga. Hann finnur samfélagsmiðlinum allt til foráttu og kveðst hafa fengið ógeð á Facebook. Helgi Hrafn segir:
„Ef þið fáið ekki athygli mína á Facebook er það vegna þess að ég sóa ekki jafn miklum tíma mínum í þennan andskotans viðbjóð og samfélagið hefur ákveðið að maður eigi að gera.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Helgi Hrafn lætur sig hverfa af samskiptamiðlinum. Það gerði hann líka haustið 2018. Þá útskýrði hann ákvörðun sína á þann hátt að hann væri ósáttur við hvernig miðillinn forgangsraðaði umræðu. Þá væri Facebook bandarískt gróðafyrirtæki sem hefði flutt höfuðstöðvar sínar til að komast hjá sektarákvæðum persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins. Þá sagði Helgi Hrafn einnig við það tilefni: „Þetta er fyrirtæki sem gengur út á að selja persónuupplýsingar þínar og forgangsraðar umræðu eftir því hvernig þetta téða fyrirtæki græðir mestan pening. Völdin sem þessi einstaklega hörmulega gallaði vefur hefur yfir íslenskri samfélagsumræðu er ekkert minna en efni í dystópíska hryllingssögu.“
Nú hefur Helgi Hrafn tekur ákvörðun um að yfirgefa samskiptamiðilinn á ný. Hann sagði á Facebook í gærkvöldi:
„Vildi bara koma aftur við og láta fólk vita að ég mun ekki fylgjast meira með svörum hérna, heldur ætla aftur að blokka Facebook hjá mér, enda er Facebook ógeð og viðbjóður sem fólk ætti að hætta að nota. Heyrumst seinna og vonandi annars staðar!“