Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar sækist eftir formennsku í flokknum, en kosið verður um æðstu embætti hans á landsfundi sem boðað hefur verið til í byrjun júní. Óvíst er hvað Árni Páll Árnason, núverandi formaður ætlar að gera, en Katrín Júlíusdóttir, varaformaður ætlar að hætta í pólitík.
Helgi er í föstudagsviðtali Fréttablaðsins í dag og fer þar yfir ástæðu ákvörðunar sinnar og vanda Samfyulkingarinnar sem hann telur ærinn: \"Við þurfum að gera breytingar í Samfylkingunni. Ég hef ákveðið að nota þetta tækifæri og gefa kost á mér í formannsframboð,“ segir Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Á dögunum var samþykkt að flýta landsfundi flokksins og verður kosið um nýjan formann. „Og ég hvet alla sem telja sig hafa erindi að gera slíkt hið sama,“ segir Helgi í blaðinu.
Þarv er reifað að fylgi Samfylkingarinnar hefur hríðlækkað og mælist nú samkvæmt skoðanakönnunum í kringum tíu prósent Helgi bregst við þessu í viðtalinu: \"Það eru náttúrulega engar fréttir að Samfylkingin sé í slæmri stöðu, það hefur verið lítið talað um annað. Það eru að opnast tækifæri núna. Flokksmenn eru að fara fram á landsfund í vor og formannskosningar. Þá gefst tækifæri til að endurskoða stefnu okkar og starfshætti. Ég er nú svo gamaldags að ég held að kjósendur kjósi ekki út á taktík, eða hver er flottastur í sjónvarpinu, heldur taki fólk afstöðu til þeirrar stefnu sem menn hafa fram að færa og síðan hvort því líki aðferðir sem fólk notar til að stunda pólitík. Ég held að niðurstaðan sé sú að fólki líkar hvorugt. Við verðum að hlusta á það. Gera breytingar og það í samstarfi við aðra flokka.“
Hann er spurður í Fréttablaðinu hvaða breytingar hann vilji gera á flokknum og flokksstarfinu: \"Við höfum verið að segja að allt sé ómögulegt og verði ómögulegt á meðan við höfum íslensku krónuna. Það verði allir bara að bíða eftir evrunni. En hún er ekkert að koma í náinni framtíð. Það var hægt að hafa þessa skoðun þegar við áttum möguleika á hraðri inngöngu í ESB, strax eftir hrun. Núna verður jafnaðarmannaflokkur sem ætlar að hafa pólitík fyrir ungt fólk, fólk með meðaltekjur og lægri tekjur, að reyna að skapa bærileg vaxtakjör og bærilegan fjármálamarkað. Það sker mest í augun þegar við berum saman lífskjör hér og í nágrannalöndum. Við verðum að segja fákeppninni á bankamarkaði, spillingu, stríð á hendur. Kalla eftir róttækum skipulagsbreytingum, eins og að skilja á milli fjárfestinga- og viðskiptabanka. Við þurfum að draga úr kostnaði við bankana, setja skorður við hvað má innheimta af fólki í þjónustugjöld. Taka upp verðtryggingarmálin og ég gæti haldið áfram. Taka afstöðu með fólkinu gegn fjármálafyrirtækjunum.“
Helgi segir vandamál Samfylkingarinnar ekki séríslensk: \"Kreppa Samfylkingar hér er samt dýpri en jafnaðarmannaflokka annars staðar en er alls staðar af sömu rótum runnin. Fólk hefur orðið fyrir vonbrigðum með að við sem erum fulltrúar almennings höfum ekki talað harðar fyrir fólkið gegn fjármálaöflunum. Fjármálaöflin ráði og pólitíkusar séu í þessu fyrir sjálfa sig. Svo séu þeir í baktjaldamakki sín í milli sem ekkert kemur út úr fyrir almenning. Þarna þurfum við að stíga fram, alveg skýr, og keyra einbeitta og afdráttarlausa pólitík um að þessu viljum við breyta,“ segir Helgi Hjörvar í föstudagsviðtali Fréttablaðsins í dag.