Helgi hættir í stjórn marels

Helgi Magnússon, sem setið hefur í stjórn Marels frá árinu 2005, gefur ekki kost á sér í stjórn á aðalfundi félagsins sem verður haldinn næsta miðvikudag, 6. mars, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Tilkynnt verður um framboð til stjórnar Marels síðar í dag. 

Þrjú félög í eigu Helga fara samanlagt með ríflega þrjár milljónir hluta í Marel en miðað við núverandi markaðsgengi, 495 krónur á hlut, nemur eignarhlutur hans um 1.500 milljónum króna. Bréf félagsins hafa hækkað um liðlega 33 prósent í verði það sem af er árinu.

Helgi settist fyrst í stjórn Marels á aðalfundi árið 2005. Auk hans sitja í stjórninni þau Ann Elizabeth Savage, Arnar Þór Másson, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Ástvaldur Jóhannsson, Margrét Jónsdóttir og Ólafur Steinn Guðmundsson.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/markadurinn/helgi-haettir-i-stjorn-marels