Fjölmiðlastjarnan og blaðamaðurinn Helgi Seljan sendir skæruliðasveit Samherja örlitla sneið á Twitter í tengslum við afhjúpun Kjarnans að skrif Guðmundar Jónssonar, skipstjóra, séu í raun skrifuð af skæruliðasveitinni svokölluðu.
Í uppljóstrun Kjarnans og Stundarinnar á starfsháttum Samherja kom í ljós að skæruliðadeildin svokallaða, sem samanstendur af Þorbirni Þórðarsyni almannatengli, Örnu Bryndísi Baldvins McClure lögmanni Samherja og Páli Steingrímssyni, skipstjóra, stundaði það að senda fjölmiðlum greinar sem voru merktar öðrum en raunverulegum höfundi.
Í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum, sem Samherji neitar að tjá sig um á grundvelli þess að þau kunna að vera stolin, kemur í ljós að Guðmundur skrifaði ekki greinina. Í gær var svo settur fyrirvari á greinina hans.
Helgi hefur verið í sigti skæruliðasveitarinnar frá því að Stundin og Kveikur greindu frá meintu peningaþvætti og mútustarfsemi Samherja í Namibíu árið 2019. Hafa menn sem eru í tengslum við skæruliðadeildina elt Helga og setið fyrir honum.
Helgi deilir frétt Kjarnans og segir:
„Það er full ástæða til að hafa þessa gæja á margföldum hásetahlut enda er ekki á hvers manns færi að klæða sig í inniskó og stjórna tölvumús á sama tíma og talað er í talstöð.“
Netverji spyr hann svo:
„Á að skella sér eitthvað út fyrir landsteinana í sumar?“
Þá svarar Helgi og vísar til samtals skæruliðasveitarinnar við ráðuneytisstjóra um að komast að því hvort Helgi hafi verið erlendis:
„Ég er ekki viss. Tékkaðu í ràðuneytinu. Það er einhver gæi þar sem veit þetta.“