Helga vala og ágúst ólafur leiða samfylkinguna í reykjavík

Öruggt er talið að Helga Vala Helgadóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson leiði lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í komandi kosningum.

Tillaga þess efnis verður lögð fyrir fund kjördæmaráðs flokksins á laugardag.

Þetta herma traustar heimildir Hringbrautar.

Helga Vala er lögmaður, hefur sérhæft sig í mannréttindamálum og verið nokkuð áberandi sem slík.

Ágúst Ólafur er aðjúnkt í hagfræði við Háskóla Íslands. Hann var kjörinn þingmaður árið 2003, en ákvað að gefa ekki kost á sér til þingsetu í alþingiskosningunum 2009.