Helga vala: „hvað á æðsta stofnun landsins að taka til bragðs þegar ráðherra neitar að svara einföldum spurningum?“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, furðar sig á þeim tíma sem það hefur tekið Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur dómsmálaráðherra að svara fyrirspurn sinni um kostnað ríkisins vegna ólögmætrar skipunar Sigríðar Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, í embætti Landsréttardómara. Helga Vala hefur nú beðið í 15 vikur en enn bólar ekkert á svari frá Þórdísi Kolbrúnu.

Þann 25. mars síðastliðinn óskaði Helga Vala eftir upplýsingum um allan kostnað, bætur til annarra umsækjenda, kostnað vegna vinnu við málið, kostnað vegna fjölmargra aðkeyptra sérfræðinga og fleira. Á Facebook-síðu sinni rifjar Helga Vala upp að þann 20. maí síðastliðinn hafi Þórdís Kolbrún svarað því til að svarið við fyrirspurninni væri tilbúið og yrði sent frá dómsmálaráðuneytinu í þeirri viku.

„Þessum spurningum um kostnað íslenska ríkisins af Landsréttarklúðri Sjálfstæðisflokksins er enn ósvarað af dómsmálaráðherra sem þó sagði þann 20. maí sl. að svar yrði sent Alþingi síðar í vikunni,“ segir Helga Vala.

„Hvað á æðsta stofnun landsins að taka til bragðs þegar ráðherra neitar að svara einföldum spurningum? Skv. þingsköpum skal ráðherra svara innan tveggja vikna ellegar senda skrifleg rök til Alþingis fyrir drætti á svari. Ekkert slíkt hefur borist,“ bætir hún við.