Helga vala: „hatari notaði rödd sína til að vekja almenning í evrópu“

„Hatari hafði orðið. Þau voru í sviðsljósinu og nýttu sér það til að koma skýrum skilaboðum á framfæri.“

Þannig hefst pistill Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, í Morgunblaðinu í dag.

„Vissulega eru ekki allir sammála þeim og þeirra afstöðu en áfram er ég djúpt þakklát fyrir allt það sem þau hafa áorkað með sínu hugrekki. Væru allir sammála væri hið hryllilega ástand sem ríkir í Palestínu varla til staðar. En það er þarna og hefur varað um áratugaskeið. Alþjóðasamfélagið virðist algjörlega máttvana, ráða ekki við verkið að koma í veg fyrir útrýmingu, þjóðarmorð og ómannúðlega meðferð. En Hatari notaði rödd sína til að vekja almenning í Evrópu, vekja athygli á ástandinu,“ heldur hún áfram.

Helga Vala telur að Hatari hafi vakið umhugsun ungra sem aldna. „Margt ungt fólk sem hefur unun af að horfa á Eurovision er núna að velta fyrir sér ástandinu í Palestínu og kynna sér sögu þess lands. Það sama má segja um eldri Eurovisionaðdáendur sem mögulega hafa ekkert velt þessu fyrir sér. Hatari kom þessu hryllilega ástandi í umræðu meðal almennings í Evrópu og bara sú staðreynd er virðingarverð því það felst líka skýr afstaða í að segja ekkert og gera ekkert.“

Henni finnst sem þátttaka hafi verið betri en sniðganga. „Fáir hefðu tekið eftir fjarveru þeirra heldur nýttu þau sviðsljósið og mættu óhrædd til leiks. Þau voru ekki ein um þetta heldur gerði slíkt hið sama engin önnur en hin heimsfræga söngkona Madonna sem sendi skýr skilaboð til heimsbyggðarinnar. Ástandinu í Palestínu verður að ljúka. Þar berum við öll ábyrgð og við eigum öll að stuðla að því. Vonandi mun umræðan lifa og heimsbyggðin bregðast við.“

Helga Vala bendir á að Íslendingar hafi skapað sér nafn á alþjóðavísu fyrir afstöðu sína til jafnréttis kynjanna, auk þess sem Ísland hafi tekið skýra afstöðu í réttindamálum samkynhneigðra. Þá nefnir hún einnig sjálfstæðisbaráttu ríkja, „en þar gekk Ísland fremst í flokki er sjálfstæði Eystrasaltsríkja sem og Palestínu var viðurkennt. Fyrir þetta sköpum við okkur sérstöðu og eftirtekt, fyrir að taka afstöðu með réttindum fólks“

„Það er einmitt þess vegna sem ég fagna einlæglega hverjum þeim fulltrúa Íslands sem notar rödd sína hér heima og erlendis til að vekja athygli á misrétti og ofbeldi. Því með þögninni tökum við líka afstöðu,“ segir Helga Vala að lokum.