Helga Vala Helgadóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, gagnrýnir viðtal við Brynjar Níelsson, aðstoðarmann dómsmálaráðherra, í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun um stöðu blaðamanna sem nú hafa fengið réttarstöðu sakbornings í máli lögreglunnar á Akureyri.
„Vitleysan flæðir þar um allt. Hann segist í sínum störfum í stjórnmálum ekki hafa skipt sér af lögreglumálum í rannsókn (hvað er hann að gera annað en það með orðum sínum undanfarna daga?) - hann segir blaðamenn bara þurfa að sæta því að svara til sakar fyrir að flytja fréttir eins og um hvert annað lögbrot sé að ræða, þegar hann veit vel að samkvæmt lögum njóta blaðamenn mikilvægrar og sérstakrar verndar einmitt þegar þeir flytja fréttir en ekki annars,“ segir Helga Vala meðal annars í færslu sinni á Facebook um málið.
Helga Vala segir að blaðamenn megi deila upplýsingum sem þeim berst, eins og staðfesti hafi verið af Hæstarétti í lögbannsmálinu þegar sýslumaður stöðvaði umfjöllun um fjármálavafstur formanns Sjálfstæðisflokksins árið 2017.
„Brynjar blaðraði um viðkvæmni og kunnáttuleysi allra sem hafa tjáð sig, annarra en hans og hans formanns og fjármálaráðherra.
Eitt sinn var talað um þörf á endurmenntun… held að það sé ekki endilega það sem hér þarf heldur er BN einfaldlega í hlutverki rakkans sem geltir hàtt í hvert sinn sem þrengir að flokknum og hans vildarvinum. Það höfum við horft upp á frá því hann settist á þing og munum áfram gera,“ segir Helga Vala og bendir á að hún sé aðeins að vísa í eitt dæmi af mörgum þar sem Brynjar fjallar um lögregluna.