Þátturinn Allt er nú til er líflegur neytendaþáttur á Hringbraut í umsjón Helgu Eir Gunnlaugsdóttir sem sýnir hún neytendum meðal annars það sem er fræðandi, skemmtilegt, spennandi eða nýtt á markaði.
Í kvöld fræðist Helga Eir um tryggingar á einfaldan hátt í spjalli við Eyjólf Lárusson, framkvæmdastjóra Allianz. Þau ræða meðal annars hvaða tryggingar er best að byrja á þegar fólk er í tryggingarhugleiðingum.
Helga Eir fer í Byko, en þar á bæ voru starfsmenn að opna nýja deild í verslun sinni í Kópavogi. Þar skoðar Helga Eir parketflísar og rakadrægt parket, sem meðal annars má nota inn á baðherbergjum.
Fjarskiptafyrirtækið Hringdu er tiltölulega nýtt fyrirtæki á markaðnum og forvitnaðist Helga Eir um starfsemi þeirra, hvernig þeir eru öðruvísi en önnur fjarskiptafyrirtæki og vildi vita meira um netsíma.
Þátturinn er sýndur klukkan 20.45 í kvöld og endursýndur klukkan 22.45. Hringbraut er á rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone.