Helga sagði nemendur ljúga ofbeldi uppá kennara með hrikalegum afleiðingum: jafnréttisnefnd kí segir málflutning grafa undan trausti

Helga Dögg Sverrisdóttir sem starfar sem grunn­skóla­kenn­ari og er jafnframt full­trúi grunnskóla­kenn­ara í Vinnu­um­hverf­is­nefnd KÍ hefur skrifað hverja greinina á fætur annarri þar sem hún segir að mörg dæmi séu um að nemendur beiti kennara sína ofbeldi með hrikalegum afleiðingum. Jafnréttisnefnd KÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þessum málflutningi Helgu er mótmælt. Helga hefur einnig verið áberandi í umræðu um tálmunarmál gagnvart feðrum.

Jafnréttisnefnd beinir spjótum sínum að grein sem birtist þann 24. maí síðastliðinn. Fyrirsögnin er: „Nemendur hafa ásakað grunnskólakennara með slæmum afleiðingum.“ Þá hefst greinin á þessum orðum:

„Í sam­fé­lag­inu hefur gengið yfir bylgja þar sem mönnum er frjálst að ásaka fólk um ýmsu hluti. Það er gert opin­ber­lega án nokk­urra afleið­inga. Stundum er fólk nafn­greint og stundum ekki. Sam­fé­lagið hefur á vissan hátt sam­þykkt slíkt fram­ferði. Börn læra það sem fyrir þeim er haft.“

Þá segir Helga jafnframt:

„Grunn­skóla­kenn­arar hafa upp­lifað að nem­andi sýni áverka, s.s. mar­bletti og klór, sem eng­inn veit hvernig er til­kom­inn nema nem­and­inn sjálf­ur, til að ná sér niðri á kenn­ara. Það þarf ekki annað en að kenn­ari setji nem­anda mörk. Skóla­reglur henta ekki öllum og ein­staka nem­andi telur sig yfir skóla­reglur haf­inn.

Grunn­skóla­kenn­arar og stjórn­endur eru ber­skjald­aðir þegar kemur að frá­sögnum barna sem vilja kenn­ara eitt­hvað illt. Kenn­arar og stjórn­endur hafa var­ann á ef þeir þurfa að ræða eins­lega við nem­anda, þeir hafa opna hurð eða annan aðila með sér, ótt­inn um hvað nem­andi gæti tekið upp á er alltaf á bak við eyrað. Langt í frá eðileg þró­un.“

Jafnréttisnefnd KÍ mótmælir eins og áður segir málflutningi Helgu. „Nefndin telur málflutning kennarans vera þess valdandi að grafa undan trausti nemenda og forráðafólks til kennara og skólakerfisins,“ segir orðrétt í ályktun nefndarinnar. 

Ályktun jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands hljóðar svo: 

Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands mótmælir málflutningi Helgu Daggar Sverrisdóttur grunnskólakennara í Kjarnanum 31. maí síðastliðinn um falskar ásakanir nemenda um meint ofbeldi kennara. Nefndin telur málflutning kennarans vera þess valdandi að grafa undan trausti nemenda og forráðafólks til kennara og skólakerfisins. Umræddur málflutningur er illa rökstuddur og gengur í bága við skyldur skólakerfisins við barnavernd og þá frumskyldu kennara að valdefla nemendur, virða þá og vernda. Nauðsynlegt er að samfélagið í heild hjálpist að við að bjóða ungu fólki upp á góð uppeldisskilyrði þar sem hlúð er að siðferðisvitund og virðingu. Ef upp koma alvarleg mál er mikilvægt að verkferlar séu skýrir og allir, starfsfólk skóla, forráðafólk og nemendur þekki hvernig beri að bregðast við.

F.h. jafnréttisnefndar,
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir forkona