Helga ó­myrk í máli: “Það væri skelfi­legt ef þessi kona verður aftur kosin for­maður”

Að sögn Helgu Daggar Sverrisdóttur, grunnskólakennara í Síðuskóla á Akureyri, væri það af slæm niðurstaða ef sitjandi formaður Félags grunnskólakennara, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir væri kosin til þess að leiða félagið áfram. Formaðurinn hefur verið sakaður um að hafa beitt starfsmann í einelti og nýlega féll úrskurður í málinu sem er samkvæmt heimildum Fréttablaðsins afdráttarlaus. Samskipti Þorgerðar við starfsmanninn voru bæði neikvæð og niðurlægjandi.

Fyrr í vikunni var málið tekið fyrir á framboðsfundi og eineltið rætt. Þar hafi komið fram að Þorgerður hafi ekki litið svo á að hún þurfi ekki að útskýra mál sitt neitt frekar. Þessu er Helga algjörlega ósammála og veltir fyrir sér í samtali við blaðamann Fréttablaðsins af hverju stjórn Félags grunnskólakennara aðhafist ekkert frekar í þessu máli.

Málið er að hennar mati einstaklega bagalegt og gæti komið til með að hafa draga úr trausti foreldra barna til félagsins og segir í samtali við Fréttablaðið. „Hvað verður um traust og trúnað foreldra grunnskólabarna ef formaður grunnskólakennara gengur svona fram sjálf? Bíður traustið ekki hnekki? Er traustið í húfi? Ég er mjög uggandi yfir þessari stöðu.“

Kosningar um formannsembættið hefjast 2. maí.