Helga hætti eftir mánuð í starfi

Helga Arnardóttir er óvænt hætt sem yfirritstjóri Birtíngs, en þar hóf hún störf í byrjun árs og var ætlað að ritstýra Mannlífi og hafa yfirumsjón með áframhaldandi stafrænni uppbyggingu tímaritaútgáfunnar.

Birtíngur gefur út tímaritin Hús og híbýli, Gestgjafann, Vikuna og fríblaðið Mannlíf. Á vef Mannlífs segir að Helga hafi nýlega hafið störf hjá útgáfunni en að hún og stjórn félagsins hafi komist að samkomulagi um starfslok hennar. Ákvörðunin hafi verið sameiginleg og er Helgu þakkað fyrir samstarfið.

Helga var áður annar af umsjónarmönnum Kastljóss hjá RÚV frá árinu 2014. Hún hætti hjá RÚV í desember til að taka við störfum hjá Birtíngi.