„Ég hef verið í þeirri stöðu að eiga ekki hreinlega fyrir mat og hef passað upp á að ég ætti alltaf popp inni. Eina vikuna var þetta það eina sem ég borðaði [...] Ég hef líka verið í þeirri stöðu þar sem ég hef þurft að sleppa því að borga húsaleigu, til að geta borgað fyrir annað sem ég hef þurft á að halda, reyndar aðallega fyrir börnin.“
Þetta sagði Helga Hákonardóttir í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hún er öryrki og tveggja barna móðir sem hefur glímt við fátækt síðastliðin tuttugu ár. Neyðin er mikil og á tímabili var neyðin slík að hún sjálf borðaði ekki annað en poppkorn svo börnin myndu fá mat.
Helga fær tímabundnar ummönnunarbætur með fatlaðri dóttur sinni og er staðan því örlítið skárri. Hún á þó von á að allt geti farið í sama farið aftur. Helga segir:
„Þegar ég á mikið fatlað barn sem er öryrki og mun vera það alla sína ævi og vita það stór hluti þjóðfélagsins horfir á hana og finnst bara allt í lagi að hún lifi við sára fátækt alla sína ævi.“