Helga Braga: Segir Eddu og Vítalíu eiga skilið að fá fálkaorðuna

Helga Braga Jónsdóttir, leikkona og skemmtikraftur, segir Eddu Falak og Vítalíu Lazareva eiga skilið fálkaorðuna.

Þetta skrifaði Helga Braga á Twitter-síðu sinni í gær.

Má ætla að Helga Braga sé að vísa til hugrekkis Vítalíu þegar hún steig fram í hlaðvarpsþætti Eddu Falak í ný liðinni viku og greindi frá kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir af fimm þjóðþekktum og valdamiklum mönnum úr samfélaginu.

Í kjölfarið stigu allir fimm mennirnir til hliðar úr störfum sínum tímabundið.

Edda Falak var að vonum ánægð með Twitter-innlegg Helgu Braga. „Verð ekki oft starstruck en HALLÓ!“ skrifaði Edda við innlegg hennar.

Þá sagði Edda einnig í öðru innleggi að ef einhver ætti skilið fálkaorðuna þá væri það Gyða Sól og vísar hún til Helgu Braga sjálfrar, „fyrir besta karakter allra tíma!“