Það verður ekkert sérstaklega erfitt fyrir leikarann góðkunna Karl Ágúst Úlfsson að gera upp vikuna í inngangsorðum sínum í Helginni í kvöld, enda reyfarakennd uppákoma á Austurvelli að baki og ræðan sem bauluð var niður.
Gestir hans að þessu sinni eru konur, nema hvað á 100 ára afmælisdegi kosningaréttar kvenna. Helga Braga Jónsdóttir leikkona mætir í brúna hægindastólinn ásamt Ilmi Stefánsdóttur myndlistarkonu sem mikið hefur unnið í leikhúsi eins og Helga Braga.
Til saman munu þau gera upp vikuna sem er að líða og ræða það helsta sem drifið hefur á dagana á síðustu vikum.
Helgin hefst á Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld.