Helftin af ungu fólki hefur notað dóp

Hartnær þriðjungur landsmanna, eða 31% þeirra, segist einhvern tíma hafa notað hass eða maríjúana að því er fram kemur í nýrru könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Hlutfallið er mun hærra í aldurshópnum 18 til 29 ára, en þar kveðst helmingur fólks hafa neytt efnanna.


Könnunin leiðir það í ljós að 69% landsmanna hafa aldrei notað umrædd efni, en engu að síður vekur athygli hversu hátt hlutfall landsmanna, eða þriðjungur, kveðst hafa notað efnin en það hefur ekki mælst hærra í annan tíma. Helgi Gunnlaugsson prófessor í félagsfræði, sem vann könnunina ásamt Jónasi Orra Jónassyni félagsfræðingi telur í samtali við Fréttablaðið í dag að ástæðan kunni ef til vill að vera sú að fólk eigi auðveldara með að viðurkenna neysluna í dag en  var hér áður fyrr. Samt megi ekki líta framhjá þeim líkum að hópur fólks sem neytir efnanna kunni að fara stækkandi. Árið 2013 var hlutfall þeirra landsmanna sem kváðust hafa notað hass og maríjúana 25% og 2002 var hlutfallið 20%. 


Í þeim hópi sem notar efnin helst, aldurshópnum 18 til 29 ára er talsverður munur á kynjum, 37% karla sögðust hafa neytt efnanna, en 25% kvenna.


Í hópnum 60 ára og eldri sögðust aðeins 7% hafa notað efnin.