Stýrivextir seðlabanka óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans verða því áfram 4,5%. Þetta er gert í ljósi þess að hagvöxtur að undanförnu hefur verið undir væntingum sem að mati nefndarinnar breyti þó ekki í meginatriðum efnahagshorfum. Hagvöxtur á síðasta ári mældist 1,9%.


Í gögnum Seðlabankans kemur fram að verðbólga mælist nú 0,8% og lítils háttar lækkun verðlags mælist sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. Lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu haldi aftur af verðbólgu og vegi á móti áhrifum töluverðra launahækkana innanlands. Verðbólguvæntingar hafi lækkað í upphafi árs, en vísbendingar séu hins vegar um að þær hafi hækkað á ný undanfarnar vikur sem mögulega endurspeglar væntingar um að niðurstaða komandi kjarasamninga muni ekki samrýmast verðbólgumarkmiðinu.


Litla verðbólgu að undanförnu má að nokkru leyti rekja til lækkunar alþjóðlegs eldsneytisverðs.