Heldur minna fylgi við stjórnina

Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna skv. nýrri könnun Gallup og innan skekkjumarka. Þó mælist stuðningur við ríkisstjórnina nokkru minni en í síðasta mánuði. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um þrjú prósentustig milli mánaða en rúmlega 36% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana. Stuðningur við stjórnina er þó á svipuðu róli og verið hefur síðan í júní.

Þriðjungur kysi Pírata ef gengið væri til kosninga í dag, fjórðungur Sjálfstæðisflokkinn, 12% Framsóknarflokkinn, rösklega 10% Samfylkinguna, rúmlega 10% Vinstri græn og rúmlega 4% Bjarta framtíð sem myndi ef sú yrði útkoma kosninganna ekki duga til þess að fá þingmann.

Nær 5% segjast myndu kjósa aðra flokka en nú eiga sæti á Alþingi.

Tíundi hver svarandi segist myndi skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna? Styður þú ríkisstjórnina?