Held áfram meðan ég er ósátt

„Hvar stendur loforðið um verðtryggingu og afnám hennar, eins og Framsóknarflokkurinn lofaði? Öll þau góðu áform sem hér eru sett fram verða smituð af verðtryggðum lánum og ákveðnum grunni sem þar er.“

Elsa Lára svaraði og sagði unnið að tillögum um verðtryggingarmálin í ákveðinni ráðherranefnd þar sem verið er að endurskoða fjármálakerfið í heild sinni. „Meðal annars er verið að skoða úrræði fyrir fyrstu kaupendur. Þar undir liggja málefni verðtryggingarinnar.“

Hun bætti við og sagði: „Það er rétt að ég hef verið iðin við að ræða um mikilvægi afnáms verðtryggingar í þingsal og þar til við sjáum tillögur sem ég get mögulega sætt mig við í þeim efnum held ég áfram að ræða mikilvægi þess að við förum í afnám verðtryggingar á neytendalánum. Ég mun halda áfram að ræða það í þingsal þar til ég sé frumvörp þess efnis.“