Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, samfélagsmiðlastjóri UN Women, var viss um að hún væri að deyja. Hún var stödd í kvikmyndahúsi og harkalegt kvíðakast helltist yfir hana. Í þættinum Heilabrot sem sýndur er á RÚV kveðst hún hafa verið lífhrædd og í hvert skipti sem hún fann fyrir einkennilegri tilfinningu í líkamanum, var hún viss um að hún væri að deyja.
Eitt erfiðasta kvíðakastið kom þegar hún var stödd í kvikmyndahúsi. Hún gat ekki kyngt gosinu sínu og hjartað ólmaðist undir bringunni. Hún taldi nær öruggt að á þessari stundu væri hún að deyja. Þegar svo hjúkrunarfræðingur tjáði henni að hún væri ekki í lífshættu, heldur væri þetta kvíðakast, þá fannst Heklu Elísabetu það vera fráleitt. Hún segir:
„Ég hafði bara aldrei heyrt neitt jafn heimskulegt á ævi minni, að sjálfsögðu var ég að deyja. Kvíði er bara eitthvað sem maður fær þegar maður er stressaður fyrir próf.“
Á Doktor.is segir um kvíða:
Helstu andlegu einkennin eru:
Svefntruflanir, áhyggjur, óþolinmæði, viðkvæmni, bræði, einbeitingarskortur, dauðaangist, ótti við að ruglast, óraunveruleikakennd, eirðarleysi.
Helstu líkamlegu einkennin eru:
Hjarsláttarköst, andþyngsli, verkir í brjóstholi, dofi á höndum og fótum, vöðvaverkir, þreyta, svimi, ógleði, sviti, kaldar og rakar hendur, munnþurrkur, kökkur í hálsi, spenntur magi, niðurgangur, uppköst, tíð þvaglát.
Leiðbeiningar fyrir sjúkling með kvíða
Ef þú finnur til þess að þú þjáist af kvíða skaltu leita til læknis og fá upplýsingar um eðli kvíðans, tegund og meðferð. Mundu að þú getur náð tökum á honum.
Mælt er með eftirfarandi:
Ótti við kringumstæður er almennt gefa ekki tilefni til ótta er vísbending um óeðlilegan eða sjúklegan kvíða.
Ef þér finnst að eitthvað alvarlegt gerist ef þú kemst ekki hjá þessum kringumstæðum þá er meðferð nauðsynleg.
Ef þú lendir í slíkum kringumstæðum mundu að kvíðinn minnkar er dvöl þín lengist þar.
Ef þú verður að mæta kringumstæðum sem þú óttast skaltu hafa hugfast að kvíðinn dvín eða hverfur þegar þú ert kominn á staðinn.
Mundu að vín, önnur vímuefni eða róandi töflur lækna ekki kvíðann heldur geta þau valdið nýjum sjúkdómi.
Berðu ekki kvíða þinn einn heldur deildu honum með öðrum.
Hafði hugfast að reynsla þín af kvíðanum getur orðið öðrum gagnleg.
Vertu þolinmóð(ur), þú færð bata.