Rannsókn sem Vilhjálmur Rafnsson, fyrrverandi prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, Aðalbjörg Kristbjörnsdóttir, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og Thor Aspelund, prófessor við Læknadeild standa að og birt hefur verið í vísindaritinu PLOS One, hefur varpað ljósi á áhrif jarðhitasvæða á heilsu fólks sem býr þeim nærri.
Rannsóknin snýst um að skoða aukna tíðni krabbameins í tengslum við búsetu við jarðhitasvæði. Málið hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum fyrir nokkrum misserum. Sitthvað nýtt hefur hins vegar bæst við varðandi málið. Og skoða vísindamennirnir hvað samsetning heita vatnsins gæti haft með þetta að gera. Efni sem eru í heita vatninu á þessum svæðum eru t.d. þungmálmar og arsenik sem er mönnum skaðlegt. Komið hefur í ljós að fólk notar heita vatnið til drykkjar og matseldar. Vilhjálmur Rafnsson skýrði málið betur út á Hringbraut.