Félag atvinnurekenda krefst þess að atvinnuvegaráðuneytið endurgreiði útboðsgjald á tollkvóta fyrir búvörur, sem Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt í andstöðu við stjórnarskrá, en fjöldi fyrirtækja, sem greitt hefur gjaldið, hefur ekki nýtt innflutningsheimildir sínar.
Útboðsgjaldið er greitt fyrirfram einu sinni á ári. FA segir því ljóst að mörg fyrirtæki hafi ekki fullnýtt innflutningsheimildir sínar, sem þau hafa þegar greitt útboðsgjald fyrir. Í upphafi árs greiddu fyrirtæki þannig um 300 milljónir króna fyrir „tollfrjálsan“ innflutningskvóta á vörum frá ESB, en eingöngu lítill hluti þeirra hefur verið fluttur inn og seldur í verslunum.
Í bréfi FA til ráðuneytisins segir: „Ljóst er að fjöldi innflytjenda hefur greitt fyrir innflutningsheimildir vegna ársins 2015 án þess að þessar heimildir hafi þegar verið nýttar. Með hliðsjón af framangreindum dómsniðurstöðum er ljóst að þessi gjöld ber að greiða til baka án frekari málalenginga. Allar tafir á endurgreiðslu munu óhjákvæmilega valda neytendum frekara fjárhagslegu tjóni."
FA segir að hér sé um að ræða umtalsverða hagsmuni fyrir neytendur. Útboðsgjaldið fyrir kíló af innfluttu kjúklingakjöti er þannig 618 krónur, fyrir kíló af osti 445 krónur og fyrir kíló af nautakjöti 521 króna, svo dæmi séu nefnd.