Fráleitt að ísland tapi auðlindum sínum

Jón Bjarnason formaður Heimsýnar hélt því fram í fréttaskýringaþættinum Heimskjósi á Hringbraut í gærkvöld að Ísland þurfi að afsala sér öllum auðlindum og fullveldi gangi það í Evrópusambandið; fráleitt svaraði Jón Steind Valdimarsson formaður samtakanna Já-Ísland enda engin dæmi þess að nokkurt ESB-landa hefði tapað auðlindum sínum við inngöngu í sambandið.


Jón Bjarnason hélt því fram í þættinum að Ísland stæði sterkar að vígi í alþjóðlegum samskiptum eitt og sér heldur en innan vébanda ESB.  Hefðu Íslendingar gengið inn í Evrópusambandið væru þeir nú annað Grikkland með 50% atvinnuleysi ungs fólks líkt og gengur og gerist í jaðarlöndum Evrópu. 


Jón Steindór Valdimarsson formaður samtakanna frábauð sér álíka yfirlýsingar um stöðu Íslands í framtíðinni áður en samið hefur verið um hagsmuni landsins, þar á meðal um sjávarútvegs- og landbúnaðarkaflana. Fyrr væri ekki hægt að taka upplýsta afstöðu.  Það sé alveg ljóst að Evrópusambandið hafi stuðlað að friði og aukinni hagsæld innan álfunnar, og eðlilegt sé að Ísland taki þátt í þeirri alþjóðasamvinnu, velferð og stöðugleika sem ESB ríkin standi fyrir.


Ítarlega var fjallað um kosti og galla ESB-aðildar í þættinum Heimsljósi á Hringbraut í gærkvöld og er hægt að nálgast klippur úr þættinum neðar á forsíðunni á hringbraut.is og þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum.