Heimsótti assange, sem kallar hana svikara

Blaðamaðurinn Emma Best birti á sunnudag 11.000 Twitter-einkaskilaboðsem fóru á milli innanbúðarfólks hjá Wikileaks á árunum 2015 til 2017. Fram kemur í samtalinu að hópurinn hafi ákveðið að notast við einkaskilaboðakerfið á Twitter, meðal annars vegna persónuverndarreglna miðilsins, sem veiti visst öryggi. Emma Best segir að skilaboðin séu birt því sem næst óritskoðuð, ef frá séu talin nöfn nokkurra óviðkomandi manneskja sem hafi verið fjarlægð til að vernda friðhelgi einkalífs þeirra.

Samskiptin fara um víðan völl og Emma Best nefnir að sum þeirra séu truflandi, til dæmis þegar Assange, sem skrifar í nafni Wikileaks-samtakanna sjálfra, segir samtökin hafa hrundið af stað atburðarás sem muni leiða til þess að Bandaríkin, Bretland, Svíþjóð, Rússland og Kína sameinist gegn gjörvöllu mannréttindakerfi Sameinuðu þjóðanna og eyðileggi það.

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/heimsotti-assange-sem-kallar-hana-svikara