Heimsókn á eldfjallasetrið á hvolsvelli

Sjónvarpshjúin Linda Blöndal og Sigmundur Ernir verða á faraldsfæti í Ferðalagsþætti kvöldsins og skoða sig um á Vesturlandi jafnt sem Suðurlandi, bæði úr lofti sem og af láði.

Þáttur kvöldsins byrjar á heimsókn okkar fólks á Eldfjallasetrið á Hvolsvelli sem verður formlega opnað á fimmtudag, en gestgjafinn er Ásbjörn Björgvinsson sem hefur ásamt öðru fagfólki hannað magnaða sýningu á öllum þáttum jarðhræringa og eldsumbrota hér á landi á þeim tugþúsundum ára sem Ísland hefur verið að myndast úti í miðju norðanverðu Atlantshafi.

Í þættinum mun Konráð Guðjónsson, hagfræðingur hjá Arion banka kynna fyrir áhorfendum helstu kennitölur ferðaþjónustunnar á síðustu mánuðum en þar kemur margt á óvart sem vert er að gefa gaum, eins og jafnan áður þegar bankinn hefur kynnt hagskýrslur sínar um atvinnugreinina.

Þá takur þáttagerðarfólkið hús á Norðurflugi sem um langt árabil hefur flogið með ferðafólk á þyrlum sínum upp um fjöll og firnindi, svo og á milli allra helstu náttúrugersemanna í byggð, en 85 prósent kúnna fyrirtækisins er erlendir, 15 prósent innlendir.

Loks er Gísli Blöndal, hótelstjóri á Hellnum sóttur heim á Snæfellsnesið, en þessi landskunni markaðsmaður söðlaði um fyrir all nokkrum árum og skellti sér í ferðaþjónustuna með athyglisverðum árangri.

Ferðalagið byrjar klukkan 20:00 í kvöld.