Heimsmet íslendinga í netnotkun

99 prósent Íslendinga á aldrinum 16-74 ára nota  internetið og eiga því heimsmet í netnotkun. Þetta kemur fram í tölum Eurostat og tölum frá ITU. Mbl.is og DV.is greina frá.

Samkvæmt tölum Eurostat koma Danir fast á hæla Íslendinga með 98 prósent netnotkun. 91 prósent Íslendinga á þessum aldri nota samfélagsmiðla á netinu en einungis 56 prósent íbúa landa í Evrópusambandinu gera það. 95 prósent Íslendinga nota auk þess netið til að nota tölvupóst, 94 prósent til að nota bankaþjónustu og 81 prósent til að hlusta á tónlist. Eru þetta mun hærri tölur en í öðrum Evrópulöndum.

Í viðtali við Morgunblaðið segir Þorbjörn Broddason, professor emeritus við félags- og mannvísindadeild HÍ að tak­mörkuð stétta­skipt­ing, vel­meg­un ís­lensks sam­fé­lags og nýj­ungagirni séu á meðal ástæðna þess að Ísland er enn það land í Evr­ópu sem notar netið mest. „Það verður ekki kveðið nógu sterkt að orði um þær fé­lags­legu og menn­ing­ar­legu breyt­ing­ar sem hafa orðið á síðustu tveim­ur ára­tug­um vegna ver­ald­ar­vefjar­ins,“ segir Þorbjörn.

„Jafn­vel þó að við meg­um sann­ar­lega ekki loka aug­un­um fyr­ir mis­mun­andi efna­hag fólks, það eru hlut­ir sem þarf sann­ar­lega að taka á, þá er til­tölu­lega lít­ill þjóðfé­lags­leg­ur og fjár­hags­leg­ur mun­ur inn­an­lands. Það held ég að hafi áhrif á að ný­mæli breiðast út í öll­um hóp­um,“ segir Þorbjörn einnig.