Heimskulegt asnaspark ráðherrans!

\"Óskiljanlegt er hvað vakir fyrir núverandi forsætisráðherra með þessu útspili, en vafalítið liggja duldir hagsmunir að baki, nema þetta sé eitt af undarlegum hugmyndum núverandi forsætisráðherra. Meðan hann skýrir ekki hugmyndir sínar á skiljanlegan hátt, tel ég þetta heimskulegt asnaspark sem ekki verður til annars en sundra þjóðinni og seinka nýjum landspítala.\"

Það eru ekki pólitískir andstæðingar forsætisráðherra sem mæla svo. Þannig ritar fyrrum skólameistari við Menntaskólann á Akureyri um langt skeið sem einig vann trúnaðarstörf fyrir framsókn í bæjarstjórn á Akureyri í eina tíð, Tryggvi Gíslason.

Tryggvi lætur þessi ummæli falla í pistli á eyjan.is. Tilefnið er grein Sigmundar Davíðs og ummæli hans um að færa Landspítalann að Vífilsstöðum en þau hafa hleypt mjög illu blóð í forstjóra Landspítalans og fleiri.

\"Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, núverandi forsætisráðherra, hefur enn vakið máls á því að reisa nýjan landspítala við Vífilsstaði, enda þótt fyrir liggi hönnun að nýjum og glæsilegum Landspítala við Hringbraut í hjarta höfuðborgarsvæðisins í næsta nágrenni Reykjavíkurflugvallar, sem ekki hverfur næsta aldarfjórðung, og í næsta nágrenni Háskóla Íslands, Íslenskrar erfðagreiningar, Háskóla Reykjavíkur og aðrar miðstöðvar vísindalegra, akademískra rannsókna – að ekki sé nú talað um, að þegar er hafin bygging á nýjum landspítala, spítala fyrir alla landsmenn, með stuðningi heilbrigðisráðherra,\" skrifar Tryggvi.

Sem fyrr segir telur hann inngrip forsætisráðherra heimskulegt asnaspark sem sundri þjóðinni en hann ræðir einnig forgangsröð fjármála hjá ríkisstjórninni:

\"Gert er ráð fyrir að spítalinn rísi í áföngum eftir því sem fjármagn leyfir, en skortur hefur verið á fjármagni til heilsugæslu og til menntakerfis eftir að ríkisstjórn – undir forystu nefnds Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar – lækkaði veiðigjald á útgerðarfyrirtækjum um milljarða sem nægt hefðu til að reisa nýjan landspítala á tveimur árum,\" skrifar Tryggvi sem er félagi í samtökunum \"Spítalinn okkar\".

Í gær sló undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar um aukið fé til heilbrigðismála Íslandsmet.