Heimsfrægir víkingar

 Velgengni íslenska landsliðsins í knattspyrnu hefur verið þvílík að sjaldan hafa Íslendingar verið jafn stoltir af sér og sinni þjóð. Íslensk menning er algerlega einstök og hefur vakið heimsathygli – og athyglin nær útfyrir Evrópuálfu. Á Times Square í New York borg birtust á  stórum turni hamingjuóskir til Íslendinga eftir sigurinn á Englandi. „Víkingahóið“ hefur vakið heimsathygli og rifjað fyrir umheiminum hvert víkingaeðli Íslendinga er og um leið þykir þjóðin hafa sent á keppnina flottasta áhorfendaskara sem þekkist, svo samstillt og kurteis sem þjóðin er. Myndir af fyrirliða liðsins sannar hversu mikið víkingablóð rennur enn í æðum Íslendinga. Grein sem birtist í dag í íslensku dagblaði hefst á þessum orðum: \"Íslenska karlalandsliðið hefur sigrað heiminn\". Hvorki meira né minna. 

Jón Karl Helgason, prófessor  við íslensku og menningardeild  Háskóla Íslands hefur fjallað um íslenska menningu á ýmsan hátt. Jón Karl bendir á í nýlegri grein að menningin er ekki jafnhrein og tær og við viljum láta. Þar spyr hann:  Er hugmyndin um íslenska menningu orðin tímaskekkja, nátttröll sem hefur dagað uppi?

Hann rifjar til dæmis upp að í grein í Reykjavíkurblaðinu Ingólfi haustið 1906 hafi Páll Þorkelsson gullsmiður stungið upp á að efnt yrði til íslenskrar allsherjarsýningar sem varpað gæti ljósi á afrek landsmanna á vettvangi landbúnaðar, sjávarútvegs, iðnaðar, lista og íþrótta. Rætt er við Jón Karl í Lífinu á Hringbraut í kvöld.