Sögurnar á bak við velgengi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og ástæðan fyrir henni verður til frásagnar í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld, en þar sest Heimir Hallgrímsson í gráa stólinn gegnt Sigmundi Erni.
Þættirnir eru jafnan meðal vinsælasta efnis Hringbrautar, enda persónulegir í meira lagi - og viðtalið við Heimi er þar engin undantekning. Hann ræðir ekki einasta um þjálfaraaðferðir sínar fyrr og síðar heldur og um æskuna í Eyjum sem var enginn endalaus dans á rósum í tilviki fjölskyldu hans, en frumburðuinn, elsta barnið lést fimm ára gamalt úr krabbameini.
Heimir er örverpið í familíunni á Heiðaveginum og fór mikinn um náttúruvætti eyjanna sinna, þar til hann endaði í fótboltanum, nema hvað, en þar var hann raunar aldrei neitt sérstaklega góður og þakkar sínum sæla fyrir að hafa verið í liðinu á meðan það var í lægð, ella hefði hann ekki komist í liðið.
Það er glatt á hjalla í þessu líflega samtali Heimis og Sigmundar Ernis sem hefst klukkan 20:30 á Hringbtraut í kvöld.