Fjölmiðlamaðurinn góðkunni Heimir Karls stingur niður penna og skrifar vangaveltur á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann fjallar um þá staðreynd hversu margir þjóðþekktir einstaklingar séu að blanda sér í deilumál Eddu Falak og Frosta Logasonar í stað þess að vekja athygli á efnahagsástandinu á landinu.
Síðastliðna daga hafa hundruðir einstaklinga stutt við bakið á Eddu á samskiptamiðlinum Twitter undir myllumerkinu #afsakið í kjölfarið af deilu Eddu og Frosta.
Heimir segist ekki ætla að gera lítið úr deilunni en furðar sig á því hversu margir séu að blanda sér í þetta mál en láti það vera að fólk sé í ánauð vegna hækkandi húsnæðislána.
„Persónulega þætti mér betra ef fólk setti sama kraft og baráttuþrek einnig í að þrýsta á og heimta að koma lagi á málin sem skipta almenning raunverulegu máli, sem gerði okkar samfélag réttlátara og sanngjarnara að búa í,“ segir Heimir og heldur áfram:
„Að afborgun af húsnæðislánum aukist frá 50% til 100% á aðeins tveimur árum! Hvar væri því tekið þegjandi nema hér? Hvar myndi það gerast í þeim löndum sem við berum okkur saman við? Ég er ekki einu sinni viss að í undirheimum myndi slíkt vera liðið!
Það er eitthvað stórkostlegt að en enginn virðist vita nákvæmlega hvert vandamálið er svo við látum það bara ,,slæda".“