Á árunum 1980 til og með 2015 voru framin 56 morð á Íslandi svo vitað sé. Þar af voru 40 karlar myrtir en 16 konur. Í langflestum tilvika má rekja morðin á konunum til heimilisofbeldis.
Þetta kemur fram í Kynlegum tölum, árlegum bæklingi mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar sem kemur út í dag, 8. mars, alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti.
Þessar upplýsingar byggja ekki á dómsmálum heldur þeim málum sem lögreglan telur morðmál þar sem kæra hefur verið lögð fram. Í 71% morða á þessu tímabili voru karlar myrtir en konur í 29% morða. Þegar horft er til kvenna sem eru myrtar á þessu tímabili þá eru 11 af 16 morðum eða 69% heimilisofbeldismál, þ.e. morð sem eru framin af skyldum eða tengdum einstaklingi. Þegar horft er til karla sem eru myrtir þá eru 11 af 40 morðum heimilisofbeldismál eða 28%. Í bæklingnum segir að þetta undirstriki mikilvægi þess að vinna markvisst gegn ofbeldi með þjónustu við brotaþola og gerendur.
Bæklingurinn er kynlegur í margvíslegum skilningi. Þar kemur til dæmis fram að karlar eru í meirihluta í stjórnum allra íþróttafélaga í Reykjavík sem skilgreind eru sem hverfisíþróttafélög. Iðkendur á aldrinum 6-18 ára eru að meirihluta karlkyns í hverfisíþróttafélögunum. Formenn þessara íþróttafélaga eru í öllum tilvikum karlmenn. Í stjórnum annarra íþróttafélaga sem styrkt eru af borginni eru í sumum nokkuð jöfn kynjahlutföll en í öðrum eru einungis karlar í stjórn. Konur eru 8% þeirra sem hafa verið kjörnar íþróttamenn ársins af Félagi íþróttafréttamanna.
Og víð er komið við. Fjöldi sjálfsvíga frá árinu 2000 til og með árinu 2014 voru 554, þar af sviptu 419 (76%) karlar sig lífi en 135 (24%) konur. Einnig er vakin athygli í bæklingnum á áhugaverðri kynjaskiptingu í komum á ólíkar göngudeildir Landsspítalans sem snúa að meðferð krónískra sjúkdóma árið 2015. Þannig eiga karlar mun fleiri komur á skilunar- og svefnrannsóknadeildir spítalans sem og deildir innan hjartalækninga en konur eiga fleiri komur á nokkrar af göngudeildum lyflækninga s.s. göngudeildir gigt-, lungna og taugalækninga.
Og enn úr Kynlegum tölum: Samkvæmt mælingu sem gerð var af Fjölmiðlavaktinni yfir tímabilið sept. 2014 til sept. árið 2015 á kynjahlutfalli meðal viðmælenda í nokkrum frétta- og fréttatengdum þáttum, þá eru karlmenn í meirihluta. Fleiri karlar en konur eru fastir þáttastjórnendur á langflestum útvarps- og hlaðvarpsstöðvum sem skoðaðar voru. Jafnast er kynjahlutfallið hjá Alvarpinu, konur 42% og karlar 58% og hjá Lindinni, konur 45% og karlar 55%. Konur eru 60% fastra þáttastjórnenda á Rás 1 og 35% þáttastjórnenda á Rás 2. Engar konur eru fastir þáttastjórnendur á x97,7.
Í þessu efni má taka fram að kynjahlutfall þáttastjórnenda og viðmælenda á Hringbraut er jafnt og hefur verið svo frá byrjun.