Allt stefnir í að fleiri ofbeldisbrot verði tilkynnt til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári en nokkru sinni fyrr. Munar þar mest um fjölgun á tilkynntum heimilisofbeldisbrotum.
Það sem af er ári hafa 472 mál sem tengjast ofbeldi á heimilum verið tilkynnt til lögreglunnar, en þó málafjöldinn í þessum flokki ofbeldis fari vaxandi á hverju ári bendir greining innan lögreglunnar til þess að ekki sé endilega um meira ofbeldi að ræða heldur treysti nú fleiri sér til að tilkynna málin en áður.
Fram kemur í Fréttablaðinu í dag, sem gerir úttekt á því, að það sem af er ári hafi verið skráð 58% fleiri heimilisofbeldismál en bárust allt árið 2014. Allar tölur lögreglunnar í þessum efnum bendi til þess að ofbeldismálum inni á heimilum fólks hafi fjölgað eftir hrunið.