Heimilið er heiti á nýrri þáttaröð sem hefur göngu sína á Hringbraut annaðkvöld, en þar mun Sigmundur Ernir fá til sín fjölda gesta til að ræða allt sem lítur að rekstri heimilisins og hvað betur má þar fara.
Þættirnir verða fjórskiptir; í fyrsta hlutanum verður ávallt fjallað um rekstur heimilisins og hvernig hægt er að stórbæta hann frá einu misseri til annars, en þar á eftir er skipt yfir í umræðu um fasteignamálin og þróun og húsnæðismarkaði með þaulvönu fagfólki úr þeim geira. Í þriðja hluta þáttarins er hugað að innkaupakröfunni og hefðbundnum neytendamálum almennt, en þar verður sérstaklega fjallað um leiðir til að spara við sig í innkaupum, aukna nýtni og minnka sóun. Loks verður hugað að ruslinu okkar í síðasta hólfi þáttarins, en efni hans breytist reglulega eftir árstíðum og breytilegum viðfangsefnum heimilisins og verður meðal annars hugað að garðinum okkar, geymslunum, viðhaldi, húsráðum og heimilistækjum þegar tímar líða fram.
Allar ábendingar um efnistök þáttarins eru vel þegnar á [email protected].