Erfiðara að vísa fólki úr landi

Þingmannanefndin sem skipuð var á síðasta kjörtímabili til að endurskoða löggjöf um útlendinga hefur skilað tillögum sínum. Meðal nýmæla í frumvarpsdrögum nefndarinnar er að ekki verði hægt að vísa fólki frá landi fyrr en niðurstaða liggur fyrir í máli þeirra.
 

Frumvarpsdrögin voru kynnt í dag, en samkvæmt fréttum RÚV er þar lagt til að réttaráhrifum verði sjálfkrafa frestað, í öllum málum þar sem niðurstaða Útlendingastofnunar hefur verið kærð, þar til niðurstaða liggur fyrir. Þá verði einnig takmarkað hvenær hægt verði að refsa þeim sem koma hingað til lands ólöglega eða á fölsuðum skilríkjum.

Þetta þýðir að ekki verður hægt að vísa fólki úr landi fyrr en niðurstaða liggur fyrir í málum þeirra og að fólk verði ekki nánast sjálfkrafa hneppt í varðhald vegna ólöglegra eða falsaðra skilríkja.

Þá leggur nefndin til að öll samskipti útlendinga við íslensk stjórnvöld fari í gegnum eina stofnun, Útlendingastofnun, og í stað þess að nota orðin hæli og hælisleitandi verði notuð hugtökin alþjóðleg vernd og umsækjandi um alþjóðlega vernd.

Sérstök áhersla verður lögð á réttindi barna með ákvæðum þar að lútandi. Til dæmis er lagt til að börnum verði skipaður hagsmunagæslumaður til að reyna að tryggja börnum vernd, að því er segir í frétt RÚB um efni frumvarpsdraganna í dag.