Heimilldarmynd Páls Steingrímsson um myndlistarmanninn Jóhannes Kjarval verður á dagskrá Hrignbrautar klukkan 21.00 í kvöld í opinni dagskrá eins og allir aðrir þættir sjónvarpsstöðvarinnar. Myndin, sem er 52ja mínútna löng, fjallar um líf og list Kjarvals og manninn á bak við pensilinn sem hann stjórnaði af fádæma kúnst.
Heimildarmyndir verða vikulega á dagskrá Hringbrautar á þessum tíma, klukkan 21.00 á mánudagskvöldum. Sjónvarpsstöðin gerði nýverið samning við Pál Steingrímsson um sýningar á öllum hans kunnustu heimildarmyndum sem skipta raunar tugum.
Sjálfur er kvikmyndagerðarmaðurinn enn á fullu í sinni list, orðinn 85 ára og hvessir augun í linsuna af sama ákafa og þegar hann var að byrja feril sinn í heimildarmyndagerð fyrir nær hálfri öld.