Heimamenn buðu í kvótann, fengu ekki

Rammi, sem er með starfsemi á Siglufirði og í Þorlákshöfn, gerði kauptilboð í kvótann sem Hafnarnes VER, varð að selja frá sér. Þrátt fyrir eindreginn vilja heimanna til kaupa á kvótanum var hann seldur burt úr Þorlákshöfn.

Meðal íbúa í Þorlákshöfn er mikil óánægja með hvernig fór. Þeirra vonir stóðu til annars.

Grandi greiddi fjóra milljarða fyrir kvótann, sem er jafnvirði hreins hagnaðar fyrirtækisins í átta mánuði. Á síðasta ári var hagnaður Granda sex milljarðar.

Heimamaður sem talað var við segir fólk vera í sorgarferli yfir niðurstöðum málsins.

Rætt verður um þetta mál í Þjóðbraut í kvöld.