Sjónvarpsþátturinn Okkar fólk heldur áfram umfjöllun sinni um aðbúnað eldra fólks á Íslandi og tekur að þessu sinni fyrir heimahjúkrun og heimahlunningu sem að sögn Helga Péturssonar, umsjármanns þáttarins, er stórvirki sem unnið er í kyrrþey hér á landi.
\"Í þessum þætti erum við að draga upp mjög einfaldar myndir af samþættri félagslegri heimaþjónustu og heimahjúkrun,\" segir Helgi og bendir á að eins og svo oft lætur þetta starf ekki mikið yfir sér, en með heimaþjónustu og heimahjúkrun er verið að freista þess að tryggja að sem flestir geti dvalið eins lengi og hægt er heima hjá sér: \"Þetta er grunnhugmyndin um gæði umönnunar eldra fólks. Ef ekki, þurfa æ fleiri að leggjast inn á spítala og við eigum öll að þekkja umræðuna um Landspítalann og skort á hjúkrunarheimilum og leguplássum,\" bendir Helgi á.
Helgi og Friðþjófur Helgason, kvikmyndatökumaður bregða upp myndum úr starfi þeirra sem sinna heimahjúkrun og heimaþjónustu í Laugardals- og Háaleitishverfi í Reykjavík. 430 heimili í hverfinu þurfa heimilisaðstoðu og 550 einstaklingar njóta þjónustu heimahjúkrunar.
\"Allir eru sammála um að samhæfð félagsleg heimaþjónusta og heimahjúkrun er mun ódýrari og oft á tíðum árangursríkari en dvöl á sjúkrahúsi með tilheyrandi raski og andlegu álagi sem því fylgir fyrir fullorðið fólk,\" minnir Helgi á og jafnframt tímasetningu þáttarins sem er frumsýndur klukkan 20:00 í kvöld.