Verkföllin: heimahjúkrun liggur niðri

Meðal afleiðinga verkfalla sem skullu á klukkan 12 í gærkvöld er að heimahjúkrun aldraðra og sjúkra liggur að mestu niðri. Stjórnendur Landspítalans sitja nú á fundi og undirbúa daginn. Verkfall sjúkraliða snertir 1600 starfsmenn en fyrsta lota verkfalls stendur til miðnættis annað kvöld.

Meðal annarra áhrifa verkfallsins má benda á að kennsla við HÍ fellur niður fyrir utan kennslu í Háskólabíói.  Miklar raðir væru einnig við landamæraeftirlit, klukkustundar bið er í sum flug frá Keflavíkurflugvelli. Fundur hefur verið boðaður upp úr hádegi

Ríkisútvarpið greindi frá þessu.