Heilt höfuðborgarsvæði bætist við daglega

Grænar lausnir í íslenskum iðnaði eru framtíðin. Hefur verið tekin u-beygja í stefnu til að koma málum í betra horf.

Þetta kom fram í sjónvarpsþætti Hringbrautar í gærkvöld, Litla iðnþinginu, eins og þáttaröðin hefur verið kölluð

Öflugur iðnaður - gott líf er yfirskrift iðnþingsins. Í þætti gærkvöldsins kom fram hjá sérfræðingum og frumkvöðlum að grænn bissness er nú alþjóðlegt fyrirbæri. Mikil fjölgun mannkyns kalli á nýjar lausnir. Í samhengi hlutanna bætist heilt höfuðborgarsvæði við mannfjölda dagsins hvern dag.

Sem dæmi var árið 1990 lítið hugað að losun gróðurhúsa varðandi áliðnað. Nú eru allt aðrar kröfur gerðar og tekur til allra atvinnusviða.

Þátturinn verður endursýndur í dag með reglulegu millibili á Hringbraut en meðal gesta í þættinum voru Almar Guðmundsson og Aðalheiður Héðinsdóttir.