Lukka páls rýnir í heilsukúrana

Lukka Pálsdóttir mætti á skjáinn á Hringbraut í gærkvöld með heilsuráðin sín, en þættir hennar, sem eru frumsýndir öll mánudagskvöld í vetur hafa fengið frábærar móttökur, enda er þar talað af viti um mataræði og næringu. 

Í þætti kvöldsins, sem sjá má hér á vef Hringbrautar, fór hún yfir alla þá kúra sem eru í boði, einkum og sér í lagi á þessum árstíma þegar fólk er uppfullt af sjálfsásökun að afloknum jólahátíðunum, en af nógu er að taka þegar kemur að kúrunum: Atkins – South Beach – Paleo – Kolvetnasnautt – Fitusnautt – Hitaeiningasnautt mataræði.  Hvað af þessu virkar best, spurði Lukka í þættinum, en að hennar sögn skýtur reglulega nýjum matarkúr upp á yfirborðið sem virðist vera lausnin á þyngdarvanda þjóðarinnar: \"Allt í einu virðist sama hvert maður fer, allir eru á Atkins mataræði, Scarsdale kúrnum, Herbal Life eða South Beach mataræði.  Tveimur árum síðar eru sömu aðilar að telja hitaeiningar, vigta mat og telja grömm af prótínum.  Þessa dagana virðist Paleo eða steinaldar mataræði vera sérstaklega vinsælt ásamt kolvetnasnauðum kúrum.  En hver er sannleikurinn í þessu?  Er þetta snilldarbragð hjá þeim sem selja okkur vörur og ráðleggingar til að græða peninga eða eru þessir kúrar það sem við þurfum til að ná bestu heilsu og kjörþyngd,\" spurði Lukka í þætti gærkvöldsins og það er við hæfi að bera sig eftir svarinu. 

Þá brá Lukka sér líka niður á veitingastaðinn sinn, Happ og kenndi áhorfendum að útbúa forláta pizzu með grænu pestói sem er nokkur sjón að sjá.

Heilsuráð Lukku eru frumsýnd öll mánudagskvöld klukkan 21:00 og endursýnd í dag og á miðvikudagskvöld.