Unnur Guðrún Pálsdóttir, betur þekkt sem Lukka Pálsdóttir, veitingamaður í Happi er nýjasti sjónvarpsmaður Hringbrautar og byrjar með athyglisverða þætti sína um matarheimspeki á stöðinni í kvöld.
Heilsuráð Lukku nefnast þættirnir, en þar mun Lukka miðla af reynslu sinni og þekkingu hvað mataræði varðar, en hún hefur framreitt hollan mat fyrir landsmenn um áraraðir svo eftir hefur verið tekið.
Eins og fram mun koma í þáttum Lukku er henni mjög í mun að bæta fæðisval landsmanna sem oft og tíðum hefur verið bæði einhæft og fjarri hollustu. Þættirnir eru ekki hefðbundnir matreiðsluþættir heldur er þeim miklu fremur ætlað að verða uppskrift að betra og næringarríkara lífi.
Þáttunum er með öðrum orðum ætlað að vera upplýsandi og fræðandi, en jafnframt lifandi og skemmtilegir að hætti Lukku Pálsdóttur.
Heilsuráð Lukku er frumsýnt á Hringbraut á mánudagskvöldum klukkan 21:00 og endursýnt á miðvikudagskvöldum klukkan 20:30.