Lögreglan í Ólafsvík afréð fyrr í dag að láta rýma Heilsugæslustöðina í Ólafsvík vegna hættu á snjóflóðum úr hlíðinni sem hún stendur undir. Hátt í fimmtán manns voru í húsinu í morgun. Vonskuveður gerir á Vesturlandi þegar líður á kvöldið og villl snjóflóðavakt Veðurstofunnar enga áhættu taka, en snjóþungt er í bænum.
Búast má austan hvassviðri eða stormi syðst á landinu í dag með talsverðri rigningu, en eftir kl. 20 snýst í vindur og seint í kvöld er gert ráð fyrir vestan stormi og vindhviðum allt að 35 m/s undir Eyjafjöllum og á Mýrdalssandi.
Í kvöld er gert ráð fyrir snjókomu á fjallvegum NV-til, s.s. Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði, einnig í Bröttubrekku og á Laxárdalsheiði.