Heilsugæslan hefst í kvöld; inflúensan og bólusetningar

Ný þáttaröð um heilbrigðismál hefst áa Hringbraut í kvöld, unninn í samvinnu við Heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu, en þar mun fjölmiðlakonan og hjúkrunarfræðingurinn Helga María Guðmundsson fá til sín lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og annað fagfólk í heilbrigðisgeiranum til að miðla af þekkingu sinni og reynslu.

Markmið þáttanna er að miðla ábyrgum fréttum og umræðu um heilsu, lífsstíl og meðferðarúrræði, en heilsufréttir eru að verða æ fyrirferðarmeiri í fjölmiðlum - og þar rata einatt inn vafasamar fullyrðingar og vangaveltur sem eiga sér litla eða enga stoð í vísindum. Því er brýnt að skapa vettvang fyrir vandaðar upplýsingar um heilsutengd málefni - og þátturinn verður af því tagi.

\"Við munum fjalla um bólusetningar og infúensuna í fyrsta þættinum á Heilsugæslunni sem verður sýndur hjá okkur á Hringbraut í kvöld,\" segir Helga María sem annast ritstjórn þáttarins ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni, sjónvarpsstjóra Hringbrautar, en gestir þáttarins eru Einar Þór Þórarinsson læknir, María Kristinsdóttir hjúkrunarfræðingur, Emilía Petra Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur og Evert Víglundsson crossfit-þjálfari, sem gefur góð heilsuráð í þætti kvöldsins.

Og Helga María vitnar í söguna: \"Það eru margir heimsþekktir einstaklingar sem við vitum að hafa fengið veirusjúkdóm á lífsleiðinni. Eins og við vitum flest þá var Joseph Stalin með ummerki á andliti eftir að hafa fengið bólusótt aðeins fimm ára gamall og fyrrum forseti Bandaríkjanna Franklin D. Roosevelt fékk mænusótt þegar hann var 39 ára gamall og þurfti að nota hækjur eða hjólastól til að komast á milli staða eftir veikindin. En eins og þessir einstaklingar þá tilheyra lang flestir sjúkdómar af þessu tagi sögunni til. Við búum við þau foréttindi í dag að til eru bóluefni sem koma í veg fyrir útbreiðslu á þessum sjúkdómum og við fáum þau einnig ókeypis. Það eina sem við þurfum að gera er mæta. Ekki eru þó allir sem vita að sum bóluefnin duga ekki að eilífu, heldur þarf að viðhalda þeim á um 10 ára fresti. Þá er sérstaklega verið að mæla með bólusetningu gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa og mænusótt en það er allt í einu og sömu sprautunni,\" segir Helga María.

\"Það hafa komið upp tilfelli af kíghósta og mislingum hér á landi síðastliðin ár og geta smitin verið frá fullorðnum einstaklingum og einnig koma smitin oft erlendis frá, en fólk sem ferðast erlendis er hvatt til að fá bóluefni áður en haldið er til framandi landa. Það þarf þó alls ekki að bíða eftir því að farið er erlendis til að fá búst eða viðhaldssprautu af bóluefni. 

Við fáum ekki aðeins bóluefni til að verja okkur sjálf heldur einnig aðra í kringum okkur (til dæmis börn sem ekki enn hafa fengið allar sprauturnar vegna ungs aldurs). Ég sjálf hef sem dæmi aldrei fengið inflúensuna að mér vitandi en þrátt fyrir það þá fór ég í bólusetningu nýverið, enda heilbrigðisstarfsmaður. Það getur einnig verið að ég hafi fengið veiruna en verið nær einkennalaus. Það þýðir að ég get fengið veiruna í mig án þess að finna mikið fyrir áhrifum hennar en ég gæti smitað einhvern sem er veikur fyrir og gæti infúensan haft slæm áhrif á þann einstakling,\" segir Helga María.

Hún bendir á að í dag sé konum á meðgöngu einnig boðið upp á viðhaldssprautu á bóluefni á milli 20. og 34. viku meðgöngu og berst þá bóluefnið til ófæddra barnanna sem eru þá varin fyrir veirunum. Þessa sjúkdóma viljum við ekki fá aftur og þess vegna sé gott ráð að fara inn á vefinn heilsuvera.is og athuga hvaða bóluefni fólk hafi fengið og hvað af þeim bólusetningum séu í raun orðin óvirk.

Heilsugæslan hefst sem fyrr segir klukkan 21:30 í kvöld og verður framvegis öll fimmtudagskvöld á Hringbraut.