Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar bókuðu á bæjarstjórnarfundi í gær áhyggjur sínar varðandi húsnæði Unglingaskólans NÚ sem nýverið tók til starfa í bænum og er einkarekinn. Fulltrúarnir minna á bókun sína frá 8.júní síðastliðnum um að húsnæðið sem er að Flatahrauni og rekið af Framsýn skólafélagi sé ekki heilnæmt. Í bókuninni segir m.a.“Þá þegar var óljóst hvort húsnæðið uppfyllti kröfur grunnskólalaga um skólalóð, aðbúnað, hollustu og öryggi á vinnustað. Við höfum miklar áhyggjur af þeim athugasemdum sem fram hafa komið af hálfu byggingarfulltrúa og heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis. Í umsögn byggingafulltrúa sem dagsett er 11. ágúst sl. kemur fram að teikningar uppfylli ekki kröfur um skólahúsnæði samkvæmt reglugerð og samkvæmt eftirlitskýrslu heilbrigðisnefndar dags. 24. ágúst sl. er ýmsu ábótavant varðandi aðstöðu í húsnæðinu, m.a. salernisaðstaða og handlaugar“ Fulltrúarnir benda á að forráðamenn skólan hafi ekki sent inn umsókn um starfsleyfi til heilbrigðiseftirlits fyrr en 8. ágúst síðastliðinn. Það sé óskiljanleg af hverju sú umsókn var ekki send inn fyrr svo hægt væri að bregðast við athugasemdum áður en skólastarf hófst. Meirihlutinn í bæjarstjórninni bókaði þetta á móti: \"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar benda á að málið er í ferli hjá heilbrigðiseftirlitinu og ekki til meðferðar hjá bæjarfélaginu. Umfjöllun heilbrigðiseftirlitsins er ekki lokið en unnið verður að málinu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.\" | ||
| ||
|