Heilmikið af fornminjum undir hafnarstræti 18

„Þegar í ljós kom að undir húsunum í Hafnarstræti 18 sæjust ummerki um mannvirki á svæðinu fór Minjastofnun fram á að þær minjar yrðu rannsakaðar. Það kom í ljós að heilmikið af fornminjum voru undir húsinu.“

Þetta segir Lilja Björk Pálsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands, í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Hún gróf upp fornminjarnar og mældi ásamt fleiri fornleifafræðingum í janúar og febrúar. „Við fundum minjar af verslunar- og pakkhúsum, salt- og kolageymslu auk annarra mannvirkja sem ekki hafa áður sést á uppdráttum sem til eru af Hafnarstræti 18 og húsum sem á lóðinni stóðu,“ segir Lilja Björk.

Heillegt leirker var meðal þess sem fannst við uppgröftinn. „Það var óvenjuheillegt, sem gæti hugsanlega bent til þess að kerið hafi verið í geymslu á lager í geymsluhúsnæði verslunarinnar. Oftast finnum við hluti úr leir sem hafa brotnað og brotunum verið hent á haugana,“ segir Lilja Björk. Hún bætir við að einnig hafi fundist hluti af lampa, flöskugler, járngripir og dýrabein.

Að sögn Lilju Bjarkar er nú unnið að því að vinna og afla heimilda úr þeim gögnum sem safnast hafa. Hún segir mörg lög af mannvistarleifum vera að finna í Reykjavík.