"Hann er dýr þessi vetur," hafði einn starfsmanna tryggingarfélaganna á orði í morgun þegar hringbraut.is var á höttunum eftir fjölda tjónatilkynninga. "Þeim hefur einfaldlega rignt yfir okkur alla helgina og það ætlar ekkert lát að verða á þeim það sem af er degi," sagði annar starfsmaður hjá öðru félagi í morgun. Hjá tryggingafélögunum virðast menn vera sammála um að yfirstandandi vetur sé sá erfiðasti sem menn hafa kynnst um langt árabil, en steininn hafi þó tekið úr um nýliðna helgi. Hjá Sjóvá höfðu um 500 tjónatilkynningar borist félaginu í morgun, ýmist frá fyrirtækjum eða einstaklingum og annar eins fjöldi tjóna er kominn á skrá hjá TM. "Við erum aðallega búin að vera í því að leiðbeina fólki og skrá niður upplýsingar, en þetta er búið að vera mikið álag, því er ekki að leyna," sagði einn starfsmanna tryggingafélaganna þegar klukkutími var liðinn af þessum vinnudegi.
Fullyrt er að tjón á húsum og lausamunum verði vart undir 500 milljónum króna eftir helgina, sennilega nær einum milljarði, en dæmi eru um að heilu þökin hafi splundrast af húsum, svo sem til sveita og þá flettust þakplötur af fjölda húsa víða um suðvestanvert landið. Skjólveggir liggja eins og hráviði í mörgum görðum á þessu svæði, en auk þess sprungu garðhýsi og vinnukofar "í loft upp" eins og íbúar í efri byggðum Kópavogs höfðu á orði í gærmorgun, en margir þeirra þorðu ekki að vera vindmegin í húsum sínum þegar verstu hrinurnar skóku útveggi og glugga. "Þetta var bara eins og loftárás," hafði einn íbúanna í Kórahverfinu í Kópavogi á orði í gærdag um þessa nöturlegu lífsreynslu.