Aukið "heilbryggði" í fyrirrúmi!

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur lögreglan á Akureyri lagt hald á efni sem grunur leikur á að hafi átt að nota til að framleiða „kraftaverkalausnir\". Sami forsprakki er grunaður um að eiga hlut að því máli og ræktun á marijúana í Svarfaðardal.

Gunnar Jóhannsson rannsóknarlögreglumaður á Akureyri segir í samtali við Hringbraut að e.t.v. sé ofmælt að tala um að lögregla hafi gert upptæka „verksmiðju“. Stundin sagði fyrst frá málinu og greindi frá því að lögreglan hefði við húsleit lagt hald á ýmis efni í húsi á Akureyri í skyndiaðgerð. Á svipuðum tíma lagði lögregla hald á 100 grömm af kannabis og 58 marijúanaplöntur á bænum Hæringsstöðum í Svarfaðardal. Allt bendir til að sami maður, Jóhannes Bjarmason, standi á bak við fíkniefnaframleiðsluna sem og kraftaverkalausnina sem Stundin segir að kallist  MMS. Hún geti valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða eftir því sem Stundin segir. Blandan var boðin til sölu á netinu.

Akureyrskum bæjarfulltrúum er samkvæmt heimildum Hringbrautar ekki skemmt yfir afhjúpun þeirri sem orðið hafi á Jóhannesi. Árið 2014 fékk Jóhannes, sem er upprunalega Dalvíkingur, einnar milljónar króna fjárstyrk frá ýmsum styrktaraðilum sem lögðu í púkk þegar hann vann fyrstu verðlaun á árlegri nýsköpunarhelgi. Það var vegna tækifæra í lífrænni ræktun en lagt er upp úr góðri hugmynd, góðri viðskiptaáætlun og hvernig keppendur um verðlaunin kynni sín mál áður en verölaunafé er ráðstafað. Á heimasíðu Gæðafóðurs, fyrirtækis mannsins, Jóhannesar Bjarmarssonar segir um þessa gleðistund þegar fyrirtækið hlaut viðurkenninguna: „Gæðafóður vann Atvinnu- og nýsköpunarhelgina á Akureyri 2014. Gæðafóður unnu \Val fólksins\' og 1. verðlaun með framúrskarandi áætlun um landnýtingu