Heilbrigðismálin, eldri borgarar og almannatryggingar

Í þætti Sjálfstæðisflokksins ,,Á réttri leið” ræða þau Þórdís Gylfadóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Óli Björn Kárason um heilbrigðismálin, kjör eldri borgara og almannatryggingar. Þáttastjórnandi er Rósa Guðbjartsdóttir sem fer yfir það með frambjóðendum hverjar helstu áskoranir og áherslur eru í þessum málaflokkum, m.a. hvert beri að stefna í kostnaðarþátttöku í heilbrigðiskerfinu, mismunandi rekstrarform og ávinninginn af auknum forvörnum.

Kosningasjónvarp stjórnmálaflokkanna er á dagskrá kl.22.00 á Hringbraut. Þáttur Sjálfstæðisflokksins, ,,Á réttri leið,” verður einnig endursýndur allan daginn á morgun, fimmtudag og um næstu helgi.

Þátt Sjálfstæðisflokksins frá síðustu viku má sjá hér. Þá voru gestir Rósu, Páll Magnússon og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.